04. apríl 2022

Útgáfa vísitalna færð yfir til Kviku banka hf. frá Kviku eignastýringu hf.

Vísitölur Kviku í mars 2022

Við vekjum athygli á því að útgáfa vísitalnanna hefur verið færð yfir til Kviku banka hf. frá Kviku eignastýringu hf. og tóku vísitölurnar minniháttar nafnabreytingum nú um mánaðamótin en aðferðafræðin er óbreytt. Í dag heita þær Vísitölur Kviku. Þessi breyting á ekki að hafa nein áhrif á notendur vísitalnanna.

Gengi hlutabréfavísitalna Kviku hækkaðu mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum. Hækkunin nam 7,0% hjá báðum hlutabréfavísitölunum.

Einblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

2022 03 YTD.png

Gengi vísitalna í mars

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 4,1%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað í 2,3. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 115 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 4.340 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 2,0% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 13 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 1,6% og lækkaði markaðsvirði hennar um 9 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,2%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 1,3 prósentustig og meðaltími vísitölunnar stóð í stað í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 1,5% í mars en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 12 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 2,6% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 1,0%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 7,0% í mánuðinum, mest allra vísitalna Kviku. Vísitalan hefur hækkað um 28,2% á milli ára en hækkað um 0,7% frá áramótum. Markaðsvirði vísitölunnar jækkaði um 99 ma.kr. í mars og stendur nú í 2.422 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 7,0% í mars.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,2% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 11 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 8,7% síðustu 12 mánuði.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í mars 2022

2022 03 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku

Algengar spurningar

 

Til baka