Kvika verðbréf
Kvika verðbréf er aðgengilegt viðskiptavinum Kviku banka og Kviku eignastýringar. Með appinu geta viðskiptavinir keypt í sjóðum og fengið góða yfirsýn yfir verðbréfasöfn sín með einföldum hætti.
Yfirlit verðbréfasafna
Aldrei hefur verið auðveldara að fylgjast með stöðu og þróun verðbréfasafnsins þíns hvar og hvenær sem er.
Stakar eignir
Kafaðu ofan í verðbréfasafnið þitt og skoðaðu stakar eignir. Þú getur séð þróun undirliggjandi eigna ásamt helstu upplýsingum.
Kaup og áskriftir
Fjárfestu og skráðu þig í áskrift að sjóðum Kviku eignastýringar þegar þér hentar.
Yfirlit
Aldrei hefur verið auðveldara að fylgjast með stöðu og þróun verðbréfasafnsins þíns hvar og hvenær sem er.
- Línurit sem sýnir þróun markaðsvirðis
- Línurit sem sýnir þróun ávöxtunar
- Kökurit sem sýnir samsetningu safns eftir eignaflokkum
- Yfirlit safna fyrir mismunandi tímabil
Eignir
Kafaðu ofan í verðbréfasafnið þitt og skoðaðu stakar eignir. Þú getur séð þróun undirliggjandi eigna ásamt helstu upplýsingum.
- Línurit sem sýnir gengisþróun viðkomandi eignar
- Hagnýtar upplýsingar um hagnað/tap, ávöxtunarframlag, hlutfall af eignasafni og fleira
- Þróun eftir mismunandi tímabilum
Sjóðir
Fjárfestu og skráðu þig í áskrift í sjóðum Kviku eignastýringar þegar þér hentar.
- Kaup í sjóðum
- Mánaðarleg áskrift
- Yfirlit sjóða
- Allar helstu upplýsingar sjóða
Hreyfingar
Allar hreyfingar verðbréfasafnsins aðgengilegar eftir völdum tímabilum ásamt samantekt yfir safnið í heild
- Samantekt yfir hreyfingar tímabils
- Innborgun og útborgun, innleystur og óinnleystur hagnaður
- Hreyfingar flokkaðar eftir eðli hreyfinga
- Nánari upplýsingar um hverja hreyfingu
Spurt & svarað
Fyrir hverja er appið?
Kvika verðbréf er aðgengilegt fyrir viðskiptavini Kviku banka og Kviku eignastýringar.
Einnig er hægt að skrá sig í viðskipti í gegnum appið.
Hvar get ég sótt appið?
Appið er aðgengilegt í App Store og Play Store
Hvernig skrái ég mig inn í appið?
- Þú byrjar á að nýskrá þig.
- Þú getur skráð þig inn í með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu.
- Eftir innskráningu er hægt að nota andlits- eða fingrafaraskanna til að komast inn í appið.
Hvað get ég séð í appinu?
- Í appinu getur þú séð stöðuna á eignasöfnum þínum, skoðað hverja eign í safninu, sjóði Kviku eignastýringar ásamt því að sjá allar hreyfingar á safninu þínu.
- Yfirlit sjóða Kviku eignastýringar ásamt ávöxtun, eignasafni, upplýsingar um sjóðinn og upplýsingablöð sjóða.
- Hægt er að skoða stöðuna á eftirfarandi tímabilum; frá áramótum, 1 vika, 1 mánuður, 6 mánuðir, 1 ár og 5 ár.
- Ef þú ert með fleira en eitt safn þá getur þú skoðað hvert safn fyrir sig eða öll söfnin saman.
Hvað get ég gert í appinu?
- Þú getur skoðað yfirlitið, eignirnar og hreyfingarnar.
- Hægt er að kaupa og selja í sjóðum Kviku eignastýringar.
- Þú getur skráð þig í mánaðarlega áskrift að sjóðum Kviku eignastýringar.
- Kvika verðbréf er ekki heimabanki Kviku í appi.
Er hægt að kaupa í sjóðum í appinu?
Já, það er bæði hægt að kaupa og selja í sjóðum Kviku eignastýringar í appinu.
Það er einnig hægt að skrá sig í mánaðarlega áskrift að sjóðum.
Hvernig virka mánaðarlegar áskriftir?
Þú skráir þig í áskrift að sjóð í gegnum appið. Um næstu mánaðarmót færðu senda kröfu í heimabankann. Krafan mun svo framvegis birtast um hver mánaðarmót.
Get ég séð bankareikninginn minn og millifært?
Þú getur einungis séð stöðuna á bankareikningum sem eru tengdir við eignastýringarsafn.
Ekki er hægt að millifæra, greiða reikninga eða sjá stöðu korta.
Get ég bætt við fleiri en einum notanda?
- Ef þú ert með safn á fleiri en einni kennitölu þá getur þú skipt á milli notenda í appinu með einföldum hætti.
- Til að skipta um notanda ferð þú í prófílinn þinn og smellir á „skipta um notanda“.
Kostar appið?
Nei, appið er aðgengilegt viðskiptavinum okkar að kostnaðarlausu.
Virkar appið fyrir félög og fyrirtæki?
Já, appið virkar bæði fyrir viðskiptavini sem eru með safn á einstaklings- og fyrirtækjakennitölu.