Forsíða /
Um Kviku /
Sterk auðkenning
Sterk auðkenning
Öruggari innskráning með sterkri auðkenningu
Öruggari innskráning með sterkri auðkenningu
Nýjar reglur um greiðsluþjónustu fela í sér að framvegis þarf sterka auðkenningu við innskráningu í netbanka og fyrir staðfestingu á greiðslum í gegnum netið.
Hvað er sterk auðkenning?
Til að tryggja að þú sért í raun og veru hinn skráði notandi þarft þú að sanna það með tveimur af eftirfarandi þremur aðferðum:
- Lífkenni (Getur verið fingrafar eða andlitsskanni á síma)
- Lykilorð eða PIN
- Rafræn skilríki í síma eða á korti eða með öryggislykli
Þessi öryggisatriði eru gerð með hag notanda í huga til að koma í veg fyrir falskar innskráningar.
Til að tryggja öryggi viðskiptavina okkar notar Kvika sterka auðkenningu á eftirfarandi þjónustum:
- Innskráning í netbanka
- Staðfestingu á millifærslur á nýja viðtakendur
- Greiðslur með kreditkorti á netinu
Sterk auðkenning fer fram með rafrænum skilríkjum í síma eða á korti með öryggislykli þegar framkvæma á fyrrnefndar aðgerðir.
Vantar þig aðstoð með sterka auðkenningu? Ekki hika við að hafa samband í 540 3200 eða kvika@kvika.is og við leysum málið.