Fjárfestaupplýsingar
Kvika leggur sig fram um að veita fjárfestum og þátttakendum á verðbréfamörkuðum góðar upplýsingar til þess að styðja við greiningu og skilning á starfsemi samstæðunnar og tækifærum hennar
Select...
Uppgjör og ársskýrslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
Lykill
Eldra

Neðangreindur listi sýnir hluthafa Kviku með eignarhlut yfir 1% þann 30. janúar 2026

Aðeins einn hlutaflokkur er í félaginu, hlutafé félagsins er samtals kr. 4.631.000.000 að nafnvirði og atkvæði eru jafn mörg.

Nafn hluthafaFjöldi hlutaEignarhluturSkráðir eigendur
Lífeyrissjóður verzlunarmanna423.083.6799.14%
Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild369.637.3137.98%
Gildi - lífeyrissjóður363.879.7567.86%
Birta lífeyrissjóður335.074.3247.24%
Stoðir hf.235.000.0005.07%
Kvika banki hf.232.410.4105.02%
Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður208.900.1724.51%
Stapi lífeyrissjóður131.979.1122.85%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn123.649.0722.67%
Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild68.614.4451.48%
Vanguard Total International S64.199.2551.39%
Landsbankinn hf.62.797.4841.36%
Vanguard Emerging Markets Stock56.864.7171.23%
Landsbréf - Úrvalsbréf hs.55.087.5731.19%
Íslandsbanki hf.48.455.6441.05%

Samkvæmt áætlun munu uppgjör Kviku verða birt sem hér segir. Dagatalið er birt með fyrirvara um breytingar.

Innlend útgáfa
EMTN
Lykill

Lánshæfismat Kviku

Matsfyrirtækið Moody‘s Investors Service leggur tvíþætt mat á lánshæfi samstæðu Kviku banka, annarsvegar lánhæfismat innlána hjá samstæðunni (e.bank deposit rating) og hinsvegar lánshæfi samstæðunnar sem útgefanda (e.issuer rating). Fyrsta lánshæfismat Kviku var gefið út í maí 2022.


Gildandi lánshæfismat

Innlán (e.deposit rating)

Mat Moody‘s á lánshæfi innlána er álit á getu banka til að endurgreiða stundvíslega innlánaskuldbindingar sínar í erlendri- og/eða innlendri mynt og endurspeglar einnig væntanlegt fjárhagslegt tap kæmi til vanskila.

FlokkurKvika banki hf.

Langtíma

Baa1

Skammtíma

P-2

Horfur

Stöðugar

Síðasta mat

4. júlí 2024


Útgefandi  (e.issuer rating)

Mat Moody‘s á lánshæfi útgefanda endurspeglar getu samstæðunnar sem útgefanda til að standa við skuldbindingar vegna útgefinna skuldaskjala að fullu og á réttum tíma.

FlokkurKvika banki hf.

Langtíma

Baa2

Skammtíma

P-2

Horfur

Stöðugar

Síðasta mat

4. júlí 2024


Þróun lánshæfismats Kviku

Grænn fjármögnunarrammi Kviku

Kvika gaf út græna fjármálaumgjörð (e. Green Financing Framework) árið 2021 og uppfærði árið 2024 undir heitinu grænn fjármögnunarrammi (e. Green Funding Framework) sem rammar inn stefnu bankans í umhverfisvænni fjármögnun og lánveitingum. Einn af lykilþáttum fyrir framgang sjálfbærrar þróunar er að fjármagni sé beint í sjálfbæra uppbyggingu. Þar gegna fjármálastofnanir mikilvægu hlutverki og geta haft veruleg og jákvæð áhrif.

Grænn fjármögnunarrammi Kviku lýsir sjálfbærnistefnu bankans, stjórnkerfi Kviku í sjálfbærni og hvernig fjármunum er úthlutað til grænna verkefna á borð við lánveitingar. Í rammanum er með skýrum og gegnsæjum hætti gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem lánveitingar bankans þurfa að uppfylla til að teljast umhverfisvænar en slíkar lánveitingar geta meðal annars snúið að orkuskiptum í samgöngum, umhverfisvottuðum byggingum, endurnýjanlegri orku, vörum og ferlum sem eru aðlöguð að hringrásarhagkerfinu ásamt verndun lífræðilegs fjölbreytileika.

Grænn fjármögnunarrammi Kviku byggir á alþjóðlegum viðmiðum (e. Green Bond Principles) sem Alþjóðasamtök aðila á verðbréfamarkaði (International Capital Market Association) hafa sett saman. Samkvæmt viðmiðunum byggir ramminn á fjórum stoðum:

  1. Ráðstöfun fjármuna (e. Use of Proceeds)
  2. Ferli við mat og val verkefna (e. Process for Project Evaluation, Selection and Exclusions)
  3. Stýring fjármuna (e. Management of Proceeds)
  4. Skýrslugjöf og úttekt (e. Reporting and External Review)

Ramminn hefur fengið jákvætt ytra álit frá alþjóðlega mats- og greiningarfyrirtækinu Sustainalytics. Þar kemur meðal annars fram að grænn fjármögnunarrammi Kviku sé trúverðugur og hafi alla burði til þess að verða áhrifaríkur.

 

Grænn fjármögnunarrammi Kviku banka hf. 2024

Græn fjármálaumgjörð Kviku banka hf. 2021

Ytra álit Sustainalytics 2024

Ytra álit Sustainalytics 2021

 

Frekari upplýsingar um sjálfbærni hjá Kviku banka, þar á meðal skýrslur og úrdrátt úr stefnum bankans, má finna hér: Kvika - Sjálfbærni