KVIKAp: Opinberir aðilar
KVIKAp: Opinberir aðilar
Almennt
Skuldabréfavísitölur Kviku (KVIKAXGOVI) eru reiknaðar af Kviku banka hf. Vísitalan nær yfir þann hluta skuldabréfamarkaðarins sem stendur utan við ríkisskuldabréfamarkaðinn og samanstendur af sértryggðum skuldabréfum bankanna samkvæmt lögum nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf og útgáfum opinberra aðila sem gefin eru út í íslenskum krónum.
Vegna skorts á seljanleika hafa vísitölur fyrir önnur skuldabréf en ríkisskuldabréf ekki verið jafn áberandi og vísitölur ríkisskuldabréfa. Með auknum útgáfum, aukinni veltu og frekari stækkun markaðarins hefur skapast betri jarðvegur fyrir vísitölur fyrirtækjaskuldabréfa og skuldabréfa opinberra aðila.
Aðferðafræði
Uppbygging
Skuldabréfavísitölur Kviku byggja á svipaðri aðferðafræði og Ríkisskuldabréfa- og Hlutabréfavísitölur Kviku og eru þær þriðji og síðasti armurinn í vísitölufjölskyldunni. Skuldabréfavísitölur Kviku eru þrjár talsins, ein yfirvísitala (KVIKAXGOVI), tvær undirvísitölur (KVIKAp) og (KVIKAcb).

Undirliggjandi gögn og birting gagna
Vísitölurnar eru reiknaðar út frá opinberu lokagengi hvers dags eins og það birtist á NASDAQ OMX Iceland. Það tryggir gagnsæi og áreiðanleika vísitalnanna. Skuldabréf í Skuldabréfavísitölu Kviku þurfa að vera með samning um skipulega viðskiptavakt og hafa lokagjalddaga lengri en 6 mánuði. Þessi skilyrði þurfa að vera uppfyllt á endurstillingardegi.
Á fyrsta viðskiptadegi hvers mánaðar eru vísitölurnar endurstilltar, þ.e. of stutt skuldabréf detta út og ný skuldabréf koma inn. Hlutfallsvigtir skuldabréfa eru reiknaðar daglega miðað við markaðsverð og nafnverð útistandandi bréfa. Kvika birtir vísitölurnar í lok hvers viðskiptadags.
Reikniformúlur
Vigt skuldabréfa
Vigt hvers skuldabréfs, Vi, er stillt daglega í samræmi við hlutfallslegt markaðsverðmæti þess við lokun markaða þann dag. Vigtir eru reiknaðar með tólf aukastöfum:

þar sem Pi[t] er uppgjörsverð (e. dirty price) á skuldabréfi i við lokun markaða á tíma t, þ.e. hreint verð auk uppsafnaðra vaxta og verðbóta en Ni[t] er útistandandi nafnverðshöfuðstóll skuldabréfs i á tíma t.
Útreikningur vísitölunnar
Vísitölugildið, G, er reiknað út sem vigtuð markaðsverðmætaaukning hvers bréfs að meðtöldum vaxtagreiðslum og afborgunum á líftíma bréfs:

Þar sem Ci er sjóðstreymi af skuldabréfi i á tíma t, þ.e. vaxtagreiðslur og afborganir ásamt verðbótum þegar það á við.