Hlutabréfavísitala Kviku
Hlutabréfavísitala Kviku
Almennt
Hlutabréfavísitala Kviku (KVIKAEQI) er reiknuð af Kviku banka hf. Leitast er eftir að hafa aðferðafræði og útreikninga sem einfaldasta til að vísitalan sé skýr og gagnsæ.
Aðferðafræði
Uppbygging
Vísitalan sýnir heildarávöxtun hlutabréfa á aðallista NASDAQ OMX Iceland. Heildarávöxtun þýðir að arðgreiðslur eru endurfjárfestar aftur í vísitölunni. Hlutabréfavísitala Kviku er markaðsvegin vísitala, sem þýðir að valið er í vísitöluna eftir markaðsvirði*. Mánaðarlega er listi yfir þau hlutabréf sem eiga að vera í vísitölunni uppfærður miðað við markaðsupplýsingar síðasta viðskiptadags á undan.
Gjaldgeng í vísitöluna eru þau fyrirtæki sem:
- Eru skráð á aðallista NASDAQ OMX Iceland
- Gefa út hlutabréf sín í krónum
- Eru með samning um viðskiptavakt
Undirliggjandi gögn og birting gagna
Vísitölurnar eru reiknaðar út frá opinberu lokagengi hvers dags eins og það birtist á NASDAQ OMX Nordic Exchange. Það tryggir gagnsæi og áreiðanleika vísitalnanna. Kvika birtir vísitöluna í lok hvers viðskiptadags.
Reikniformúlur
Vigt hlutabréfa
Vigt hvers hlutabréfs, Vi, er stillt daglega í samræmi við hlutfallslegt markaðsverðmæti þess við lokun markaða þann dag. Vigtir eru reiknaðar með tólf aukastöfum:

þar sem Pi[t] er opinbert lokaverð á hlutabréfi við lokun markaða á tíma t en Ni[t] er fjöldi útistandandi hluta á tíma t.
Útreikningur vísitölunnar
Vísitölugildið, G, er reiknað út sem vigtuð markaðsverðmætaaukning hvers bréfs að meðtöldum greiðslum sem fara til hluthafa:

Þar sem Ci er sjóðstreymi af hlutabréfi i á tíma t, svo sem arðgreiðslur eða aðrar sambærilegar greiðslur til hluthafa þegar t er arðleysisdagur.
*Aðferðafræðinni var breytt 1. september 2020 en áður voru vigtir veltu- og flotleiðréttar. Þessu var breytt til einföldunar og til að auka gagnsæi.