Forsíða /
Um Kviku /
Stjórn /
Sigurður Hannesson

Sigurður Hannesson

Stjórnarformaður

Sigurður Hannesson er stjórnarformaður Kviku. Hann var kjörinn í stjórn Kviku í mars 2020. Sigurður er fæddur árið 1980 og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Á árunum 2013-2017 starfaði Sigurður sem framkvæmdastjóri á eignastýringarsviði hjá Kviku banka (áður MP banka). Sigurður var árið 2015 varaformaður framkvæmdahóps stjórnvalda um losun fjármagnshafta og árið 2013 formaður sérfræðingahóps um aðgerðir í þágu skuldsettra heimila (Leiðréttingin). Á árunum 2010-2013 starfaði Sigurður sem framkvæmdastjóri Júpíters rekstrarfélags, nú Kvika eignastýring, og á sviði markaðsviðskipta hjá Straumi fjárfestingabanka á árunum 2007-2010. Sigurður er með DPhil gráðu í stærðfræði frá Oxford háskóla, BS gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggiltri verðbréfamiðlun.

Sigurður situr í stjórnum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Grænvangs, Háskólans í Reykjavík, Skólastrætis og Krabbameinsfélags Íslands. Sigurður er eigandi 8.550.107 hluta í Kviku í gegnum einkahlutafélagið BBL 39 ehf. Sigurður hefur ekki hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa í skilningi leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og telst jafnframt vera óháður bankanum í skilningi leiðbeininganna.