Forsíða /
Um Kviku /
Framkvæmdastjórn /
Halldór Snæland

Halldór Snæland

Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs

Halldór lauk M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá KTH Royal Institute of Technology í Stokkhólmi árið 2014 og útskrifaðist frá Háskóla Íslands með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði árið 2003 ásamt því að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Halldór býr yfir tveggja áratuga reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur starfað hjá Kviku frá árinu 2015. Hann hefur síðustu fjögur ár verið forstöðumaður rekstrardeildar og var áður sérfræðingur í fjárstýringu Kviku. Á árunum 2014 til 2015 var Halldór fjármála- og rekstrarstjóri hjá nýsköpunarfyrirtækinu Sidekick Health. Hann var forstöðumaður fjárstýringar MP banka um sjö ára skeið á árunum 2006 til 2012 og starfaði þar áður sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Kaupþingi og Búnaðarbanka Íslands.