Forsíða /
Um Kviku /
PSD2 og prófunarumhverfi
PSD2 og prófunarumhverfi

Um PSD2

Lög um greiðsluþjónustu nr. 150/2020, tóku gildi 1. nóvember 2021. Með þessari löggjöf er Payment Service Directive (PSD2) evrópulöggjöfin innleidd í íslensk lög. Þessum lögum er m.a. ætlað að stuðla að aukinni samkeppni, öryggi og nýsköpun í greiðsluþjónustu.

Kvika heldur úti vefþjónustuskilum sem gerir viðskiptavinum Kviku kleift að nýta þjónustu hjá þriðja aðila, sem hafa starfsleyfi sem greiðsluvirkjendur og/eða reikningsupplýsingaveitendur, til að sinna bankaviðskiptum með sambærilegum hætti og í eigin lausnum Kviku.

PSD2 vefþjónustuskil Kviku

Aðilar sem eru með starfsleyfi sem greiðsluvirkjendur og/eða reikningsupplýsingaveitendur geta nálgast þróunarumhverfi (e. sandbox) Kviku banka HÉR.  Þar má finna tæknilýsingar á API vefskilunum auk annarra upplýsinga sem þarf til þess að tengjast PSD2 vefskilum bankans. Nánar er fjallað um notkun þróunarumhverfisins í skilmálum Kviku sem má nálgast HÉR

Aðilar geta jafnframt haft samband við Kviku á netfanginu psd2@kvika.is fyrir aðstoð við að tengjast API vefskilum bankans eða tilkynna um vandamál eða bilanir í vefskilum bankans.

Kvika heldur jafnframt úti sérstakri síðu, https://status.psd2.kvika.is, þar sem aðilar geta fengið yfirlit yfir stöðuna á PSD2 vefskilum bankans og skráð sig fyrir tilkynningum þegar um niðritíma á þjónustunni er að ræða vegna uppfærslna eða þegar upp koma atvik sem skerða þjónustuna.

Hafðu samband

Ef spurningar vakna má hafa samband við þjónustustjóra Kviku í gegnum netfangið psd2@kvika.is