Forsíða /
Um Kviku /
Mannauður /
Störf í boði hjá Kviku banka

Störf í boði hjá Kviku banka

Sérfræðingur í viðskiptagreind

Kvika leitar eftir sérfræðingi í viðskiptagreind innan hagdeildar bankans. Verkefnin eru margvísleg en hagdeild stýrir m.a. áætlanagerð samstæðunnar, vinnur að þróun stjórnendaupplýsinga og lykilmælikvarða, ásamt því að annast skýrslu- og upplýsingagjöf til eftirlitsaðila.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Viðar Hafsteinsson, forstöðumaður hagdeildar, vidar.hafsteinsson@kvika.is

Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2024.

Sækja um

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Þróun og rekstur á lykilmælikvörðum samstæðu
  • Þróun á viðskiptagreindarumhverfi og gagnaferlum
  • Þróun á stjórnendaskýrslum í PowerBI
  • Aðkoma að þróun á vöruhúsi gagna og gagnalagi viðskiptagreindar

Menntunar – og hæfniskröfur 

  • Háskólanám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af gagnavinnslu, greiningu og framsetningu gagna með SQL og Power BI
  • Forritunarreynsla í Python, R eða C#
  • Þekking á lausnum á borð við Azure Analytics eða öðrum skýjalausnum kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Skipulags- og aðlögunarhæfni í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi

Fjölbreytt og spennandi sumarstörf hjá samstæðu Kviku

Kvika leitar að öflugu sumarstarfsfólki til starfa innan samstæðunnar. Meðal vörumerkja eru: Kvika, Kvika eignastýring, TM, Lykill, Auður, Netgíró og Aur.

Spennandi tækifæri fyrir aðila sem hafa áhuga á að starfa innan fjármálageirans.

Sækja um

Nánari upplýsingar veita:

Birkir Svan Ólafsson, mannauðsráðgjafi, birkir.olafsson@kvika.is

Gyða Björk Bergþórsdóttir, mannauðsráðgjafi, gyda.bergthorsdottir@kvika.is

Almenn umsókn

Kvika er öflugur banki sem stuðlar að umbreytingu og samkeppni á fjármálamarkaði. Gildi Kviku eru: hugrekki, einfaldleiki og langtímahugsun. Við leggjum mikið upp úr upplifun viðskiptavina, nýsköpun og stafrænu vöruframboði. Á meðal vörumerkja samstæðunnar eru Kvika, Kvika eignastýring, TM, Lykill, Auður, Netgíró, Straumur og Aur. Kvika er árangursdrifið og metnaðarfullt fyrirtæki þar sem starfsfólk virðir og styður hvort annað.

Sækja um