Kvika skilgreinir sjálfbærniáhættu sem atburð eða ástand á sviði umhverfismála, félagsmála eða stjórnarhátta sem gæti, ef atburðurinn eða ástandið raungerist, haft raunveruleg eða hugsanleg veruleg neikvæð áhrif á rekstur Kviku, þ.m.t. virði fjárfestinga, lán og viðskiptavini. Skilgreining Kviku byggir á skilgreiningu Taskforce on Climate-Related Financial Disclosures (TCFD) á sjálfbærniáhættu.

Undir umhverfismálum fellur loftslagsáhætta, sem skiptist í raunlæga áhættu og umbreytingaráhættu. Raunlæg áhætta stafar af loftslagsbreytingum og getur verið ýmist atburðadrifin eða langvarandi. Atburðadrifin raunlæg áhætta raungerist sem skyndilegt atvik eða atburður af völdum loftslagsbreytinga, eins og ofsaveður eða flóð. Langvarandi raunlæg áhætta þróast yfir langt tímabil og birtist sem viðvarandi ástand af völdum loftslagsbreytinga, eins og súrnun sjávar og tap á líffræðilegum fjölbreytileika. Umbreytingaráhætta stafar hins vegar af breytingum í átt að lágkolefnishagkerfi og getur falið í sér aukna laga- og reglugerðaáhættu vegna þróunar regluverks á sviði sjálfbærni, áhættu vegna nauðsynlegra tæknibreytinga til að draga úr loftslagsbreytingum og auka aðlögunarhæfni fyrirtækja og samfélags, aukna markaðsáhættu vegna breyttra aðstæðna á mörkuðum og aukna orðsporsáhættu vegna breyttra krafna og væntinga samfélags og hagaðila. Ófullnægjandi umgjörð og stjórnun félagslegra þátta getur skapað aukna áhættu, þá einkum vegna mögulegra neikvæðra áhrifa á ímynd félags, vanlíðan og brottfalli starfsfólks, brota á persónuvernd og mögulegs fjárhagslegs taps. Ófullnægjandi stjórnarhættir geta einnig skapað áhættu fyrir félag, meðal annars vegna mögulegra lögbrota, sekta og neikvæðra áhrifa á ímynd félagsins.
Sjálfbærniáhætta er þess eðlis að hún drífur áfram aðra áhættuþætti, þ.m.t. rekstraráhættu, útlánaáhættu og markaðsáhættu, og því þarf ávallt að meta áhrif sjálfbærniáhættu með tilliti til þeirra áhrifa sem auðkennd sjálfbærniáhætta hefur á aðra áhættuþætti.
Stjórn Kviku banka hefur sett stefnu um sjálfbærniáhættu sem felur í sér umgjörð um hvernig skuli greina, meta, vakta, stýra og upplýsa um sjálfbærniáhættu á skilvirkan hátt innan bankans. Tilgangur stefnunnar er að marka skilvirkan og gagnsæjan ramma fyrir stjórnun sjálfbærniáhættu þannig að tryggja megi hlítingu við innri og ytri kröfur. Stefna Kviku banka um sjálfbærniáhættu er sett með vísan í áhættustefnu samstæðu og gildir fyrir alla starfsemi bankans. Stefnan tekur mið af gildandi reglum og lagakröfum eins og við á, þar á meðal viðmiðunarreglum EBA um stýringu áhættu vegna umhverfis, félagslegra þátta og stjórnarhátta (EBA/GL/2025/01). Stjórn Kviku banka skilgreinir lykiláhættuvísa sjálfbærniáhættu og hefur virkt eftirlit með þeim.