Kvika fordæmir og mun ekki líða einelti, áreitni, ofbeldi eða aðra ótilhlýðilega háttsemi á vinnustaðnum. Bankinn hefur skilgreint stefnu og viðbragðsáætlun gegn einelti, kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi í samræmi við 38. gr. laga 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerðar nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Markmið stefnunnar er að fyrirbyggja og uppræta einelti, áreitni eða ofbeldi með því að stuðla að fræðslu og forvarnarstarfi gegn óæskilegri hegðun á vinnustaðnum og þannig auka vitund og skilning á framangreindri háttsemi. Einnig skal upplýsa starfsfólk um málsmeðferð slíkra mála og hvernig það getur komið kvörtun, ábendingu eða rökstuddum grun í réttan farveg, og fylgja viðbragðsáætlun sem kveður á um viðbrögð ef koma fram kvartanir eða ábendingar um framangreinda háttsemi.