Útboðið hefst kl. 08:30 þriðjudaginn 13. maí og lýkur kl. 17:00 fimmtudaginn 15. maí 2025
Til að fá aðgang að gögnum þarftu að velja land og samþykkja skilmála
Íslandsbanki heldur opinn kynningarfund miðvikudaginn 14. maí kl. 16:30 á Hótel Reykjavík Grand. Fundurinn verður einnig í beinu streymi, sem er opið öllum og ekki þarf að skrá sig. Upptaka af fundinum verður ekki aðgengileg eftir að honum lýkur.
Lýsing | Tilboðsbók A | Tilboðsbók B | Tilboðsbók C |
---|---|---|---|
Þátttaka | Aðeins opin einstaklingum með íslenska kennitölu | Opin öllum fjárfestum | Aðeins opin eftirlitsskyldum fagfjárfestum sem gera tilboð fyrir eigin reikning og uppfylla það skilyrði að samanlögð fjárhæð eigna þeirra sé jafnvirði 70 ma.kr. eða hærri |
Tilboðsverð | Fast verð, 106,56 kr. á hlut | Tilboð skulu gerð á eða yfir lágmarksverði, 106,56 kr á hlut. Söluverð skal vera lægsta tilboðsverð sem nær lágmarksstærð útboðsins en lágmarksverð skal þó ekki vera lægra en fasta verðið í tilboðsbók A. | Söluverð skal vera hið sama og í tilboðsbók B og tilboðsgjöfum í tilboðsbók C skal gefinn kostur á að hækka tilboðsverð sín til jafns við verðið í tilboðsbók B hafi tilboð þeirra verið lægri |
Stærð áskrifta | Lágmarkstilboð 100.000 kr. og hámarkstilboð 20.000.000 kr. | Lágmarkstilboð 2.000.000 kr. | Lágmarkstilboð 300.000.000 kr. |
Áskriftartímabil | Móttaka áskrifta hefst kl. 08:30 þriðjudaginn 13. maí og lýkur kl. 17:00 fimmtudaginn 15. maí 2025. | Móttaka áskrifta hefst kl. 08:30 þriðjudaginn 13. maí og lýkur kl. 17:00 fimmtudaginn 15. maí 2025. | Móttaka áskrifta hefst kl. 08:30 þriðjudaginn 13. maí og lýkur kl. 17:00 fimmtudaginn 15. maí 2025. |
Sértækar reglur um úthlutun | Áskriftir í tilboðsbók A munu njóta forgangs umfram aðrar tilboðs-bækur við úthlutun Áskriftir í tilboðsbók A verða ekki skertar nema tilboðsbók A fylli heildarmagn útboðsins | Reynist nauðsynlegt að skerða áskriftir til að mæta eftirspurn skal það gert á grundvelli tilboðsverðs eingöngu. Reynist nauðsynlegt að skerða lægstu samþykktu tilboð skal það gert hlutfallslega. Úthlutun til fjárfesta í tilboðsbók B mun fara fram án þess að sæta skerðingu vegna eftirspurnar fjárfesta í tilboðsbók C. | Úthlutun í tilboðsbók C skal byggja á fyrirframákveðnum og birtum viðmiðum sem hafa hagkvæmni útboðsins að leiðarljósi |
Afhending hlutabréfa | Stefnt er að afhendingu hlutabréfa í síðasta lagi tveimur virkum dögum eftir móttöku greiðslna vegna einstakra áskrifta | Stefnt er að afhendingu hlutabréfa í síðasta lagi tveimur virkum dögum eftir móttöku greiðslna vegna einstakra áskrifta | Stefnt er að afhendingu hlutabréfa í síðasta lagi tveimur virkum dögum eftir móttöku greiðslna vegna einstakra áskrifta |
Söluaðilar áskilja sér rétt til að krefjast staðfestingar á greiðslugetu eða tryggingar fyrir greiðslu áskrifta frá fjárfestum. Verði fjárfestir ekki við þessari kröfu söluaðila innan þess frests sem gefinn er, áskilja söluaðilar sér rétt til að ógilda áskrift viðkomandi fjárfestis að hluta eða í heild. Söluaðilar meta einhliða hvort staðfesting á greiðslugetu eða trygging teljist fullnægjandi.
Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við útboðið ef ekki verða gerð tilboð í lágmarksfjölda þeirra hluta sem selja á í útboðinu eða af einhverri annarri ástæðu, allt að eigin vild. Verði hætt við útboðið í samræmi við framangreint verða öll tilboð í hluti sem selja á í útboðinu, og úthlutanir gerðar á grundvelli þeirra, ógild vegna þess.
Greint verður frá því opinberlega ef hætt verður við útboðið, eða ef það verður framlengt eða því frestað og í slíkum tilvikum (ef frá eru talin tilvik þar sem hætt verður við útboðið) verður gefinn út viðauki við lýsinguna sem verður útbúinn, staðfestur og birtur í samræmi við 23. gr. lýsingarreglugerðarinnar og 5. gr. laga, nr. 14/2020, um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Í slíkum tilvikum (ef frá eru talin tilvik ef hætt er við útboðið), munu fjárfestar eiga þess kost að afturkalla pantanir sínar.
Fyrirtækjaráðgjöf Kviku
Fyrir nánari upplýsingar getur þú haft samband við fyrirtækjaráðgjöf Kviku hér að neðan eða í síma 5403290