Sendu okkur skilaboð og þér verður svarað eins fljótt og auðið er. Athugið að hægt er að senda nafnlausar ábendingar.
Kvika banki hf.
Katrínartúni 2
105 Reykjavík
Kvika reynir ávallt að hafa það að leiðarljósi að starfsemi bankans sé í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Stór hluti þessa er að bregðast fljótt og vel við ábendingum og kvörtunum sem kunna að berast frá okkar viðskiptavinum.
Kvika hefur sett sér reglur um meðferð kvartana en tilgangur þeirra er að tryggja að ferli við úrvinnslu kvartana viðskiptavina Kviku sé sanngjarnt, gagnsætt og að úrvinnslu- og svartími mála sé eins skammur og kostur er. Þá er tilgangur reglnanna einnig að koma í veg fyrir að mistök starfsmanna bankans eða brot á lögum og reglum endurtaki sig.
Hafi viðskiptavinur einhverjar ábendingar eða kvartanir vegna meintra mistaka Kviku og/eða starfsmanna bankans á framkvæmd laga eða reglna getur hann beint kvörtun til viðkomandi starfsmanns, með skriflegum hætti til regluvarðar Kviku með tölvupósti á netfangið regluvordur@kvika.is, eða með því að senda rafræna ábendingu í gegnum heimasíðu bankans. Kvika heldur skrá um kvartanir og meðhöndlun þeirra.
Ef viðskiptavinur er ósáttur við þau svör sem bankinn veitir, getur hann beint kvörtun sinni til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, sem fjallar m.a. um ágreining viðskiptavina við fjármálafyrirtæki. Kvörtun til úrskurðarnefndarinnar skal afhent Fjármálaeftirlitinu skriflega á sérstöku eyðublaði sem má nálgast á skrifstofu eftirlitsins og heimasíðu þess. Erindi skulu send til:
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Guðrúnartún 1,
105 Reykjavík
Tölvupóstur: fjarmal@nefndir.is
Sími: 578-6500
Fjármálaeftirlitið leiðbeinir viðskiptavinum eftirlitsskyldra aðila. Í því felst að leitast er við að leiðbeina aðilum um þau úrræði sem þeir hafa til að ná fram rétti sínum, m.a. hvaða aðilar fari með úrskurðarvald í þeirra málum og aðrar almennar leiðbeiningar. Sjá nánar á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.
Aðilar geta leitað réttar síns fyrir almennum dómstólum hafi ágreiningsefnið ekki verið undanþegið lögsögu þeirra með lögum eða samningi.
Neytendastofa er ein þeirra eftirlitsstofnana sem hafa eftirlit með viðskiptalífinu og lögum frá Alþingi sem sett eru vegna öryggis og réttinda neytenda. Á heimasíðu Neytendastofu er m.a. unnt að nálgast upplýsingar um það í hvaða tilvikum og með hvaða hætti neytendur geta leitað til stofnunarinnar, telji þeir að réttur sé á þeim brotinn.
Vakin er athygli á Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta sem starfar skv. lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Markmið laganna er að veita innstæðueigendum í viðskiptabönkum og sparisjóðum og viðskiptavinum fyrirtækja sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf lágmarksvernd gegn greiðsluerfiðleikum viðkomandi fyrirtækis í samræmi við ákvæði laganna. Sjá nánar viðeigandi lög/reglur og frekari upplýsingar um sjóðinn, útgreiðslur o.fl. á heimasíðu sjóðsins.