Gjaldeyrir
Kvika hefur tekið virkan þátt í þróun gjaldeyrismarkaðs Keldunnar og sinnir Kvika öllum gjaldeyrisviðskiptum fyrir viðskiptavini sína í gegnum þann markað.
Aukið gagnsæi í gjaldeyris-viðskiptum
Gjaldeyrismarkaður Keldunnar er umbreyting á hefðbundnum gjaldeyrismarkaði og færir fjárfestum stóraukið gagnsæi með tilliti til bæði tilboða og þóknana.
Gjaldeyrismarkaður keldunnar
- Markmið gjaldeyrismarkaðarins er að auka dýpt og sýnileika á gjaldeyrismarkaði.
- Velta á hefðbundnum gjaldeyrismarkaði er ekki sýnileg og verðmyndun byggir á verðlagningu á millibankamarkaði.
- Með virkri þátttöku aðila á kaup- og söluhlið myndast dýpri markaður sem ætti að leiða af sér þrengra verðbil sem er til hagsbóta fyrir alla.
- Upplýsingar eru öllum sýnilegar í rauntíma hér.
- Viðskiptavinir geta lagt inn pantanir og gengið að tilboðum sem eru á markaði.
- Uppgjör viðskipta fer fram á milli ISK og IG reikninga hjá Kviku eða þeim banka sem viðskiptavinur vísar til.
Lifandi pantanabók
• Pöntun sem sýnir verð og magn og hefur fastan gildistíma eða lifir þar til viðskipti verða eða pöntun er afturkölluð;
• Kerfið heldur utan um allar pantanir sama hvort þær hafa verið fylltar eða þeim eytt
• Viðskiptavinur sendir pantanir í gegnum símtal, tölvupóst eða spjallforrit. Tiltekur verð, magn og gildistíma líkt og tíðkast með viðskipti á hlutabréfamarkaði
• Allar pantanir birtast í rauntíma sem eykur gegnsæi og virkni.
Viðskiptagluggi
• Sýnir öll viðskipti,
• gjaldeyrismiðlun Kviku getur tilkynnt öll viðskipti inn í kerfið,
• viðskiptaglugginn er birtur á Keldan.is í rauntíma.