04. maí 2022

Vísitölur Kviku í apríl 2022

Gengi vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa Kviku hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum. Hækkunin nam 0,9%.

Einblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

2022 04 YTD.png

Gengi vísitalna í apríl 2022

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 0,9%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði úr 2,3 í 2,4. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 120 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 4.220 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,9% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 3 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, stóð í stað en markaðsvirði hennar hækkaði um 28 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,3%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 1,3 prósentustig og meðaltími vísitölunnar hækkaði úr 5,3 í 5,4 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 0,2% í apríl en markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 71 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 0,8% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,1%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 1,4% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 74 ma.kr. í apríl og stendur nú í 2.348 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 1,3% í apríl.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,9% í mánuðinum, mest allra vísitalna Kviku. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 2 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 8,9% síðustu 12 mánuði.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í apríl 2022

2022 04 EQI.png

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

Aðferðafræði vísitalna Kviku

Algengar spurningar

Til baka