14. apríl 2016
Euromoney hélt í vikunni vel heppnaða ráðstefnu um íslenskt efnahagslíf í London. Meðal ræðumanna voru Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri Seðlabanka Íslands og Robert Parker ráðgjafi hjá Credit Suisse.
Sigurður Atli Jónsson forstjóri Kviku tók þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni: Ísland, stöðugleiki til framtíðar og endurreisn samkeppnishæfs og fjölbreytts efnahagslífs. Þátttakendur í pallborði ásamt Sigurði Atla voru Jón Daníelsson frá London School of Economics, Mark Dowding frá BlueBay Asset Management og Ivan Morozov frá T. Rowe Price.