29. júní 2023

Tilkynning um slit á samrunaviðræðum við Íslandsbanka hf.

Undanfarna mánuði hafa staðið yfir viðræður um mögulegan samruna Kviku banka hf. („Kvika“) og Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og hafa félögin ásamt erlendum og innlendum ráðgjöfum sínum unnið að því að meta mögulega samlegð af samruna og stöðu sameinaðs félags á markaði. 

Í kjölfar þeirrar vinnu er það mat stjórnar Kviku að verulegur ávinningur geti falist í samruna. Viðræðurnar hafa verið góðar en hafa hins vegar ekki enn leitt til sameiginlegrar niðurstöðu um skiptahlutföll. 

Í ljósi atburða síðustu daga og þess að fyrirséð er að boðað verði til hluthafafundar hjá Íslandsbanka og mögulegs stjórnarkjörs, telur stjórn Kviku ekki forsendur til þess að halda samningaviðræðum áfram. Þó er ljóst að ávinningur af samruna félaganna gæti orðið verulegur og hefur stjórn Kviku lýst yfir vilja sínum til þess að hefja viðræður að nýju ef forsendur skapast. 

Til baka