26. febrúar 2026
Kvika óskar Evolv og Advania til hamingju með vel heppnuð viðskipti vegna kaupa Advania á Evolv. Fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka var ráðgjafi seljenda í viðskiptunum og hafði umsjón með söluferlinu í heild, frá undirbúningi og uppbyggingu sölugagna, í gegnum markaðssetningu og viðræður, til samningsgerðar og undirritunar.
Evolv hefur frá stofnun árið 2020 þróað og innleitt lausnir sem byggja á stafrænu vinnuafli og sjálfvirknivæðingu, með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði í rekstri fyrirtækja og stofnana. Félagið hefur á skömmum tíma byggt upp sterkt teymi sérfræðinga og þjónustað fjölbreyttan hóp viðskiptavina þvert á atvinnugreinar.
Advania er leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki með starfsemi á Norðurlöndum og víðar. Með kaupunum styrkir félagið enn frekar stöðu sína á íslenskum markaði og eykur við sérþekkingu og þjónustuframboð á sviði sérhæfðra hugbúnaðarlausna og stafrænnar umbreytingar. Viðskiptavinir Evolv munu njóta ávinnings af aukinni tæknilegri breidd, sterkari innviðum og aðgengi að víðtæku samstarfsneti, meðal annars á sviði kjarnakerfa, gervigreindar, skýjalausna og gagnavinnslu.
Við þökkum fyrir traustið og farsælt samstarf.