30. ágúst 2022

Kvika og TM eru fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

Í verkefninu felst að öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda sinna. Viðurkenningin byggir á úttekt á góðum stjórnarháttum og tekur mið af leiðbeiningum gefnum út af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Tilgangur viðurkenningarinnar er að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti. Alls hlutu 16 fyrirtæki viðkenningu að þessu sinni.

Ingunn Svala Leifsdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd Kviku og Sigurður Viðarsson fyrir TM.

Til baka