21. september 2016
Kvika lauk í gær víxlaútboði á nýjum flokki, KVB 17 0323. Í boði voru 2.000 milljónir króna að nafnvirði og bárust tilboð frá fjárfestum í 4.460 milljónir. Umframeftirspurn nam því 2.460 milljónum króna. Víxlarnir voru seldir á 5,98% flötum vöxtum.
Uppgjör víxlanna fer fram þann 23. september næstkomandi og verða þeir skráðir í Kauphöll Íslands (Nasdaq Iceland) í næstu viku.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku:
„Við erum mjög ánægð með viðtökur fjárfesta í útboðinu og vaxtakjörin. Umframeftirspurnin endurspeglar mikið traust á bankanum.“