Kvika leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í áhættustýringu
Kvika leitar eftir öflugum og reynslumiklum einstaklingi til starfa á sviði áhættustýringar. Um er að ræða alhliða starf innan áhættustýringar þar sem viðkomandi mun koma að öllum starfssviðum áhættustýringar og starfa með flestum sviðum bankans.
Starfssvið:
- Greining og mat á
áhættuþáttum í starfsemi bankans
- Þátttaka í þróun
og viðhaldi upplýsingakerfa innan bankans
- Þróun
aðferða og kerfa innan áhættustýringar
- Þróun
sjálfvirkni í upplýsingaöflun, skýrslugerð og vöktun
- Skýrslugjöf
til stjórnenda og eftirlitsaðila
Hæfni og þekking:
- Þekking
og reynsla af áhættustýringu og/eða
fjárstýringu er nauðsynleg
- Reynsla af vinnu
í gagnagrunn og T-SQL (MS-SQL) kostur
- Reynsla af greiningarvinnu og mjög góð
greiningarhæfni
- Gott vald á úrvinnslu og framsetningu talna
og gagna
- Háskólapróf
á framhaldsstigi í verkfræði,
tölvunarfræði, viðskiptafræði eða öðru sambærilegu
- Hæfni í mannlegum
samskiptum
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2016.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Kviku eða senda umsóknir á netfangið starf@kvika.is. Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir markaðs- og mannauðsstjóri Kviku, hildur.thorisdottir@kvika.is.