28. maí 2026

Kvika banki breytir vöxtum

Í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands 20. maí 2026 þar sem meginvextir hækkuðu um 0,25%,  breytir Kvika banki vöxtum.

Ný vaxtatafla tekur gildi fimmtudaginn 28.05.2026.

 

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  • Vextir á óverðtryggðum innlánum hækka um 0,25%
  • Vextir á yfirdráttarlánum og greiðsludreifingum hækka um 0,25%

 

Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við 7. kafla almennra viðskiptaskilmála Kviku og 2. mgr. 56. gr. laga nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu.

Vaxtatafla Kviku

Til baka