Kvika banki breytir vöxtum
Í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands 19. nóvember 2025 þar sem meginvextir lækkuðu um 0,25%, lækkar Kvika banki vexti.
Ný vaxtatafla tekur gildi föstudaginn 21.11.2025.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Vextir á óverðtryggðum innlánum lækka um 0,25%
- Vextir á yfirdráttarlánum og greiðsludreifingum lækka um 0,25%
- Vextir á reikningum í erlendum myntum lækka um allt að 0,20%, mismunandi eftir myntum og þeim breytingum sem hafa átt sér stað á stýrivöxtum og markaðsvöxtum viðkomandi myntar
Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við 7. kafla almennra viðskiptaskilmála Kviku og 2. mgr. 56. gr. laga nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu.