23. október 2026

Kvika banki gefur út sértryggð skuldabréf í fyrsta sinn

Fyrsti sértryggði skuldabréfaflokkur Kviku banka, KVIKA CB 32, hefur verið tekinn til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Útgáfan byggir á húsnæðislánasafni bankans og styður við áframhaldandi sókn Kviku á húsnæðislánamarkaði.

Kvika hóf að bjóða húsnæðislán undir vörumerki Auðar sumarið 2025 og hafa þau fengið afar góðar viðtökur. Með útgáfu sértryggðra skuldabréfa bætist við ný fjármögnunarleið fyrir bankann en Kvika verður jafnframt fjórði útgefandi sértryggðra skuldabréfa á íslenskum markaði.

Í frumútboði flokksins bárust tilboð fyrir samtals 10,12 milljarða króna og voru samþykkt tilboð fyrir 5,92 milljarða króna. Heildarstærð flokksins er 6,42 milljarðar króna, þar af eru 500 milljónir króna til eigin nota. Bréfin bera 7,74% árlega vexti.

Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri Kviku banka

„Við erum ánægð með viðtökurnar sem þessi fyrsta útgáfa okkar á sértryggðum skuldabréfum hefur fengið. Hún eykur fjölbreytni í fjármögnun bankans og styður við áframhaldandi uppbyggingu húsnæðislánastarfsemi okkar,“

Skuldabréfin eru gefin út undir sértryggðum skuldabréfaramma Kviku, með leyfi fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Nánari upplýsingar um útgáfuna og skilmála skuldabréfanna má finna undir fjárfestaupplýsingum.

Til baka