Kvika banki breytir vöxtum
Kvika banki breytir vöxtum
Í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands þann 20. nóvember sl. lækkar Kvika banki vexti. Seðlabankinn lækkaði meginvexti um 0,50%.
Ný vaxtatafla tekur gildi föstudaginn 22.11.2024.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Vextir á óverðtryggðum innlánum lækka um 0,50%
- Vextir á yfirdráttarlánum og greiðsludreifingum lækka um 0,50%
- Vextir á reikningum í erlendum myntum lækka um allt að 0,38%, mismunandi eftir myntum og þeim breytingum sem hafa átt sér stað á stýrivöxtum og markaðsvöxtum viðkomandi myntar
Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við 7. kafla almennra viðskiptaskilmála Kviku og 2. mgr. 56. gr. laga nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu.
Vaxtatafla Kviku banka