Á stjórnarfundi þann 12. febrúar 2025 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir árið 2024.
Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs (4F 2024)
- Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 1.601 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 363 m.kr. á 4F 2023 og eykst um 1.238 m.kr. eða 340%.
- Hagnaður samstæðunnar í heild eftir skatta nam 3.447 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 1.578 m.kr. á 4F 2023 og eykst um 1.869 m.kr. eða 118%.
- Hreinar vaxtatekjur námu 2.498 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 2.331 m.kr. á 4F 2023 og hækkuðu því um 167 m.kr. frá fyrra ári eða 7,1%.
- Vaxtamunur var 3,8% á 4F 2024, samanborið við 3,9% á 4F 2023.
- Hreinar þóknanatekjur voru 1.601 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 1.578 m.kr. á 4F 2023 og hækkuðu því um 23 m.kr. frá fyrra ári eða 1,5%.
- Aðrar rekstrartekjur námu 567 m.kr. á 4F 2024 samanborið við 94 m.kr. á 4F 2023 og hækkuðu því um 473 m.kr. frá fyrra ári eða 503%.
- Rekstrarkostnaður nam 2.864 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 2.779 m.kr. á 4F 2023 og eykst um 85 m.kr. frá fyrra ári eða 3%.
- Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi var 18,5%.
- Hagnaður á hlut nam 0,74 kr. á 4F 2024, samanborið við 0,33 kr. á 4F 2023.
Afkoma af eignum haldið til sölu:
- Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 1.919 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 990 m.kr. á 4F 2023.
- Samsett hlutfall trygginga nam 87,8%, samanborið við 92,5% á fjórða ársfjórðungi 2023.
Helstu atriði efnahags:
- Innlán frá viðskiptavinum námu 163 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 143 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 15% á árinu.
- Útlán til viðskiptavina voru 150 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 136 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 10% á árinu.
- Heildareignir námu 355 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 335 ma.kr. í lok árs 2023.
- Eigið fé samstæðunnar var 90 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 82 ma.kr. í lok árs 2023.
- Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,8% í lok árs 2024, samanborið við 22,6% í lok árs 2023 og var gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar 1,33 í lok ársins.
- Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 360% í lok árs 2024, samanborið við 247% í lok árs 2023.
- Heildareignir í stýringu námu 456 ma.kr., samanborið við 470 ma.kr. í lok árs 2023.
Helstu atriði ársreiknings og afkomu 2024:
- Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 5.817 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 3.009 m.kr. árið 2023 og eykst um 2.808 m.kr. eða 93,3%.
- Hagnaður samstæðunnar í heild eftir skatta nam 8.150 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 4.033 m.kr. árið 2023 og eykst um 4.117 m.kr. eða 102%.
- Hreinar vaxtatekjur námu 9.681 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 8.021 m.kr. árið 2023 og hækkuðu um 1.660 m.kr. frá fyrra ári eða 21%.
- Vaxtamunur var 3,9% á árinu 2024, samanborið við 3,8% árið 2023.
- Hreinar þóknanatekjur námu 6.137 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 5.916 m.kr. árið 2023 og hækkuðu um 220 m.kr. frá fyrra ári eða 3,7%.
- Aðrar rekstrartekjur námu 1.367 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 915 m.kr. árið 2023 og hækkuðu um 452 m.kr. frá fyrra ári eða 49%.
- Rekstrarkostnaður nam 10.608 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 10.785 m.kr. árið 2023 og lækkar um 177 m.kr. frá fyrra ári eða 1,6%.
- Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 18,8% á árinu 2024, samanborið við 10,2% árið 2023.
- Hagnaður á hlut nam 1,73 kr. á árinu 2024, samanborið við 0,84 kr. árið 2023.
Afkoma af eignum haldið til sölu:
- Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM tryggingar, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 3.460 milljónum króna á árinu 2024, samanborið við 1.730 m.kr. árið 2023.
- Samsett hlutfall trygginga nam 93,9%, samanborið við 93,6% árið 2023.
Stjórn bankans leggur til að greiddur verði 0,44 króna arður á hlut eða 2.050 milljónir króna, að teknu tilliti til eigin bréfa, á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024. Arðgreiðslan nemur 25% af hagnaði samstæðu Kviku eftir skatta sem er til samræmis við arðgreiðslustefnu bankans. Ennfremur mun stjórn leggja til sérstaka arðgreiðslu í kjölfar viðtöku á söluverði TM auk þess að hefja kaup á eigin hlutum sem bankinn hefur fengið heimild til frá Seðlabanka Íslands að uppfylltu því skilyrði að sala á hlutum bankans í TM sé lokið.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Það er ekki annað hægt að segja en að árið 2024 hafi verið umbreytingarár hjá félaginu. Mikill viðsnúningur varð í rekstri Kviku, eftir talsverðar áskoranir síðastliðin tvö ár, og stór skref voru stigin við stefnumörkun og straumlínulögun félagsins með sölu á TM til Landsbankans, sem við vonumst til þess að hljóti endanlegt samþykki á næstu vikum.
Afkoma áframhaldandi starfsemi fyrir skatta stóreykst milli ára, eða um rúmlega 90%, og eykst arðsemi efnislegs eiginfjár úr 10,2% í 18,8%, sem er örlítið undir langtímamarkmiði bankans. Mestu munar um aukningu vaxtatekna á tímabilinu, sem aukast um 21%, en einnig aukast fjárfestingatekjur og þóknanatekjur á tímabilinu. Það var þó ekki aðeins tekjuhliðin sem skilaði þessum góða árangri. Fækkun starfsfólks og aðhald í almennum rekstrarkostnaði skilaði sér í 1,6% samdrætti í rekstrarkostnaði milli ára, á tímabili þar sem verðbólga var um 6% og launahækkanir í samfélaginu umtalsverðar.
Rekstur TM var einnig stórgóður á síðasta ári og rekstrarniðurstaða Kviku samstæðunnar í heild mjög góð. Hagnaður samstæðu eftir skatta nam rúmlega 8 milljörðum árið 2024, sem er um tvöföldun frá fyrra ári.
Horfur á nýju ári eru prýðilegar. Markaðsaðstæður virðast talsvert betri en fyrir ári síðan, vextir eru byrjaðir að lækka og Kvika stendur frammi fyrir margvíslegum tækifærum, bæði á Íslandi og í Bretlandi. Við söluna á TM gefst okkur bæði tækifæri til þess að greiða umtalsverða fjármuni til hluthafa og nýta það eigið fé sem eftir situr til að stækka lánabækur félagsins. Með stærri lánabók nýtum við innviði okkar betur og aukum stöðugar tekjur án samsvarandi kostnaðaraukningar, auk þess að styrkja enn frekar stoðir bankans með dreifðara eignasafni.
Við stefnum jafnframt að því að efla starfsemi okkar á sviði fjárfestingabankastarfsemi og eignastýringar með það að markmiði að auka þóknana- og fjárfestingatekjur.“
Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 13. febrúar kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku.
Ársreikningur Kviku 2024
Horfa á streymi
Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is eða í gegnum Slido appið hér