12. október 2026

Kvika banki auglýsir eftir tilboðum í endurskoðunarþjónustu.

Kvika banki hf. auglýsir hér með opið útboð á endurskoðunarþjónustu fyrir bankann og dótturfélög hans.

Útboðið er opið en til að tilboðsgjafar komi til greina sem endurskoðendur Kviku þurfa þeir að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Endurskoðunarfyrirtæki skal hafa starfsleyfi samkvæmt 4. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur, hafa starfsstöð á Íslandi auk þess að vera aðili að alþjóðlegu tengslaneti
  • Endurskoðað skal í samræmi við Alþjóðlega endurskoðunarstaðla
  • Endurskoðunarfyrirtækið skal vera óháð Kviku banka, dótturfélögum hans og lykilstjórnendum í samstæðunni

Gert er ráð fyrir að tillaga um val á endurskoðendum verði lögð fyrir aðalfund bankans í mars 2027 og byggi á niðurstöðum útboðsferlisins. Kvika áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.

Fyrir nánari upplýsingar skal senda fyrirspurn á netfangið eirikur.jensson@kvika.is

Væntanlegir tilboðsgjafar skulu tilkynna um þátttöku sína fyrir kl. 16:00 þann 19. október 2026, með tilkynningu þess efnis á sama netfang. Þann dag verða útboðsgögn afhent þeim tilboðsgjöfum sem uppfylla skilyrði útboðsins, eftir að undirrituð hefur verið trúnaðaryfirlýsing.  

Tilboðsgjafar hafa frest til og með 30. október 2026 til að skila inn endanlegu tilboði.

Til baka