03. nóvember 2023

Kristján Valdimarsson nýr regluvörður Kviku banka hf.

Kristján Valdimarsson hefur verið ráðinn í starf regluvarðar Kviku banka. Kristján tekur við starfinu af Ernu Heiðrúnu Jónsdóttur sem hefur tekið við sem ritari stjórnar bankans og mun starfa á lögfræðisviði. Regluvörður heyrir undir forstjóra bankans.

Kristján er með yfir áratugs reynslu af störfum á fjármálamörkuðum og á eftirlitsstarfsemi fjármálafyrirtækja og hefur jafnframt sinnt lögmannsstörfum. Hann sat í um fjögur ár í framkvæmdastjórn Borgunar hf. sem regluvörður, hefur starfað sem sérfræðingur í regluvörslu hjá Íslandsbanka og Rapyd og sem lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu, m.a. við vettvangs- og verðbréfaeftirlit. Þar áður var Kristján lögmaður á Íslensku Lögfræðistofunni og í lögfræðideild hjá Landsbanka Íslands í slitameðferð (LBI).

Kristján hefur verið héraðsdómslögmaður frá árinu 2011 og lauk M.L. gráðu frá Háskólanum í Reykjavík á árinu 2010 og áður B.A. gráðu frá sama skóla. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Til baka