04. desember 2023

Vísitölur Kviku í nóvember 2023

Gengi Hlutabréfavísitölu Kviku, KVIKAEQI, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 5,0% á milli mánaða.

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í nóvember

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 3,7% milli mánaða. Meðallíftími vísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 34 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 3.938 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 2,1% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 11 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 2,1% milli mánaða og markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 77 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 2,1%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 4,5% og meðaltími vísitölunnar hækkaði um 0,5 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 2,2% í nóvember og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 1 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 3,4% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 1,5% milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 5,0% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 101 ma.kr. í nóvember og stendur nú í 2.234 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 5,0% í nóvember.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, lækkaði um 1,2% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar var óbreytt milli mánaða.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í nóvember 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka