03. nóvember 2023

Vísitölur Kviku í október 2023

Gengi verðtryggðu Ríkisskuldabréfavísitölu Kviku, KVIKAi, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 0,8% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í október

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 2,6% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 103 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 3.900 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 0,8% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 3 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,6% milli mánaða og markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 5 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,7%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar er óbreytt og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,7% í október og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 24 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,7% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 0,8% milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 5,1% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 87 ma.kr. í október og stendur nú í 2.127 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 5,3% í október.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, lækkaði um 0,1% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 3 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í október 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka