02. október 2023

Vísitölur Kviku í september 2023

Gengi vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 0,4% á milli mánaða.

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í ágúst

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 4,6% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 195 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.003 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 1,7% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 5 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði einnig um 1,7% milli mánaða og markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 1 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,7%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,3 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 1,4% í september og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 22 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 2,6% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb lækkaði um 0,8% milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 7,0% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 167 ma.kr. í september og stendur nú í 2.218 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 6,9% í september.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,4% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 1 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í september 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka