06. september 2023

Vísitölur Kviku í ágúst 2023

Gengi Skuldabréfavísitölu Kviku, KVIKAXGOVI, lækkaði minnst allra vísitalna Kviku í mánuðinum en allar vísitölur Kviku lækkuðu í ágúst. Skuldabréfavísitalan lækkaði um 0,1% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í ágúst

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 0,6% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 19 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.197 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 1,7% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 6 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,1% milli mánaða og markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 8 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,8%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,7 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 1,0% í ágúst og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 14 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 1,8% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb lækkaði um 0,6% milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 0,3% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 8 ma.kr. í ágúst og stendur nú í 2.382 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 0,4% í ágúst.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, lækkaði um 0,2% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 14 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í ágúst 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka