02. ágúst 2023

Vísitölur Kviku í júlí 2023

Gengi Hlutabréfavísitölu Kviku, KVIKAEQI, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 5,5% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Gengi vísitalna í júlí

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 3,2% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði um 0,2 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 215 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.217 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,5% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 2 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, var óbreytt milli mánaða og markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 10 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,2%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,6 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,7% í júlí og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 2 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,1% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 0,6% milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 5,5% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 208 ma.kr. í júlí og stendur nú í 2.389 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 5,2% í júlí.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,8% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 2 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í júlí 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka