03. júlí 2023

Vísitölur Kviku í júní 2023

Gengi Fyrirtækjavísitölu Kviku, KVIKAc, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 1,1% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Gengi vísitalna í júní

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 0,1% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 46 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.002 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 0,8% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 5 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,8% og markaðsvirði hennar lækkaði um 1 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,8%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,3 prósentustig og meðaltími vísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,4% í júní og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 37 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,1% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb stóð í stað milli mánaða.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 0,4% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 13 ma.kr. í júní og stendur nú í 2.181 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 0,3% í júní.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, lækkaði um 0,4% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 4 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í júní 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka