05. júní 2023

Vísitölur Kviku í maí 2023

Gengi Fyrirtækjavísitölu Kviku, KVIKAc, hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 1,2% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í maí

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 6,6% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 0,2 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 286 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.048 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,9% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 4 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,6% og markaðsvirði hennar hækkaði um 17 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,1%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,9 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,3% í maí og lækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 14 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 0,2% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 0,5%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 11,5% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 285 ma.kr. í maí og stendur nú í 2.194 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 11,2% í maí.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,2% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 10 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í maí 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka