03. maí 2023

Vísitölur Kviku í apríl 2023

Gengi verðtryggðu ríkisskuldabréfavísitölunnar hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 2,8% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í apríl

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 1,0% milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 37 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.334 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 2,8% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 11 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,2% og markaðsvirði hennar hækkaði um 13 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,2%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,2 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 1,0% í apríl og hækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 14 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 1,9% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 0,7%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 2,5% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 76 ma.kr. í apríl og stendur nú í 2.478 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 2,8% í apríl.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,9% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 43 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í apríl 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka