04. apríl 2023

Vísitölur Kviku í mars 2023

Vísitölur Kviku í mars 2023 

Gengi óverðtryggðu ríkisskuldabréfavísitölunnar hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 3,9% á milli mánaða.

Einblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í mars

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, stóð í stað á milli mánaða. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 68 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.372 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,1% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 1 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 3,9% og markaðsvirði hennar hækkaði um 20 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 2,6%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 1,0 prósentustig og meðaltími vísitölunnar stóð í stað í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,8% í mars og hækkaði markaðsvirði vísitölunnar um 7 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,2% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 1,1%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 1,1% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 96 ma.kr. í mars og stendur nú í 2.554 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 1,2% í mars.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,4% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 6 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í mars 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

 

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka