02. mars 2023

Vísitölur Kviku í febrúar 2023

Gengi Hlutabréfavísitölu Kviku hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan hækkaði um 3,6% á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í febrúar

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 1,9%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 107 ma.kr. á milli mánaða og stóð í lok mánaðarins í 4.440 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 0,2% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 9 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 2,8% og markaðsvirði hennar hækkaði um 5 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,4%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,4 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum, er nú 5,5.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, stóð í stað í febrúar og hélst markaðsvirði vísitölunnar óbreytt. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 1,9% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb hækkaði um 0,8%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 3,6% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 93 ma.kr. í febrúar og stendur nú í 2.650 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 0,6% í febrúar.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 0,8% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 2 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í febrúar 2023

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka