03. nóvember 2022

Vísitölur Kviku í október 2022

Gengi Vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði minnst allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan stóð í stað á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í október

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 2,9%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar lækkaði um 0,1. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 136 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 3.952 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, hækkaði um 1,8% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 7 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,6% en markaðsvirði hennar hækkaði um 14 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,4%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,4 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum og er nú 5,4.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,4% í október en markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 8 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,8% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,2%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 5,2% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 123 ma.kr. í október og stendur nú í 2.136 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 5,2% í október.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, lækkaði um 0,9% á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar var óbreytt.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í október 2022

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka