04. október 2022

Vísitölur Kviku í september 2022

Gengi Vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði minnst allra vísitalna Kviku í mánuðinum en vísitalan stóð í stað á milli mánaða.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í september

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 5,5%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði um 2,5. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 27 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 3.833 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 4,4% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 15 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,2% en markaðsvirði hennar hækkaði um 9 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 1,9%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 1,4 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum og er nú 5,5.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 2,3% í september en markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 7 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 5,2% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, lækkaði um 0,9%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 8,3% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 187 ma.kr. í september og stendur nú í 2.031 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 8,3% í september.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, stóð í stað á milli mánaða. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 4 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í september 2022

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka