31. ágúst 2022

Vísitölur Kviku í ágúst 2022

Gengi vísitölunnar KVIKCcb: Sértryggt hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum. Hækkunin nam 0,4%.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í ágúst

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 1,2%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað í 2,6. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 27 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 4.031 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,1% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 1 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,3% en markaðsvirði hennar hækkaði um 7 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,1%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,3 prósentustig og meðaltími vísitölunnar lækkaði um 0,1 í mánuðinum og er nú 5,6.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,3% í ágúst en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 14 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 0,1% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,4%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 2,4% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 47 ma.kr. í ágúst og stendur nú í 2.214 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 2,4% í ágúst.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, lækkaði um 0,2% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 2 ma.kr.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í ágúst 2022

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka