03. ágúst 2022

Vísitölur Kviku í júlí 2022

Vísitölur Kviku í júlí 2022

Gengi hlutabréfavísitölunnar KVIKAeqcap hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum. Hækkunin nam 7,2%.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í júlí

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, hækkaði um 3,9%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar var 2,5. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 187 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 4.057 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, stóð í stað í mánuðinum.
Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, hækkaði um 0,6% en markaðsvirði hennar hækkaði um 12 ma.kr. Í heildina hækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,3%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar lækkaði um 0,8 prósentustig og meðaltími vísitölunnar var 5,7 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, hækkaði um 0,2% í júlí en markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 9 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, hækkaði um 0,1% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, hækkaði um 0,3%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, hækkaði um 7% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 166 ma.kr. í júlí og stendur nú í 2.261 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap hækkaði um 7,2% í júlí, mest allra vísitalna Kviku.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,3% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 3 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 7,3% frá áramótum.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í júlí 2022

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka