01. júlí 2022

Vísitölur Kviku í júní 2022

Gengi vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa Kviku hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum. Hækkunin nam 1,2%.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í júní

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 1,3%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar stóð í stað í 2,6. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 88 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 3.850 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,2% í mánuðinum og lækkaði markaðsvirði hennar um 5 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,5% en markaðsvirði hennar lækkaði um 14 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,3%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 0,4 prósentustig og meðaltími vísitölunnar stóð í stað í 5,8 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 0,9% í júní en markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 5 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 1,1% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, lækkaði um 0,8%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 1,9% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 66 ma.kr. í júní og stendur nú í 2.069 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 1,9% í júní.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,2% í mánuðinum, mest allra vísitalna Kviku. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 10 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 10,0% síðustu 12 mánuði.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í júní 2022

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka