03. júní 2022

Vísitölur Kviku í maí 2022

Gengi vísitölu fyrirtækjaskuldabréfa Kviku hækkaði mest allra vísitalna Kviku í mánuðinum. Hækkunin nam 1,3%.

pdfEinblöðungar vísitalna Kviku

Þróun vísitalna Kviku frá áramótum

Gengi vísitalna í maí

Markaðsvísitala Kviku, KVIKATRI, lækkaði um 5,9%. Meðallíftími Markaðsvísitölunnar hækkaði úr 2,4 í 2,6. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 308 ma.kr. á milli mánuða og stóð í lok mánaðarins í 3.912 ma.kr.

Verðtryggða vísitalan, KVIKAi, lækkaði um 0,4% í mánuðinum og hækkaði markaðsvirði hennar um 8 ma.kr. Gengi óverðtryggðu vísitölunnar, KVIKAxi, lækkaði um 0,8% en markaðsvirði hennar lækkaði um 79 ma.kr. Í heildina lækkaði Ríkisskuldabréfavísitalan, KVIKAGOVI, um 0,6%. Verðtryggingahlutfall vísitölunnar hækkaði um 3,8 prósentustig og meðaltími vísitölunnar hækkaði úr 5,4 í 5,8 í mánuðinum.

Skuldabréfavísitalan, KVIKAXGOVI, lækkaði um 0,6% í maí en markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 3 ma.kr. Vísitala opinberra aðila, KVIKAp, lækkaði um 0,9% á sama tíma og sértryggða vísitalan, KVIKAcb, lækkaði um 0,5%.

Hlutabréfavísitala Kviku, KVIKAEQI, lækkaði um 9,9% í mánuðinum. Markaðsvirði vísitölunnar lækkaði um 234 ma.kr. í maí og stendur nú í 2.114 ma.kr. Hlutabréfavísitalan KVIKAeqcap lækkaði um 9,9% í maí.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa, KVIKAc, hækkaði um 1,3% í mánuðinum, mest allra vísitalna Kviku. Markaðsvirði vísitölunnar hækkaði um 5 ma.kr. Vísitalan hefur alls hækkað um 9,3% síðustu 12 mánuði.

Þróun félaga innan Hlutabréfavísitölu Kviku í maí 2022

Frekari upplýsingar um vísitölur Kviku má finna hér. Vísitölurnar eru sendar út í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda, hægt er að skrá sig með því að senda póst á visitolur@kvika.is

pdfAðferðafræði vísitalna Kviku

pdfAlgengar spurningar

Til baka