06. desember 2023

Framkvæmdastjóraskipti hjá Kviku Securities Ltd.

Gunnar Sigurðsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Kviku Securities Ltd. í London (KSL), dótturfélags Kviku banka hf. Samhliða starfslokum mun Gunnar hætta í framkvæmdastjórn samstæðu Kviku og stöðugildum í framkvæmdastjórninni jafnframt fækkað um eitt.

Stjórn KSL hefur ráðið Richard Beenstock sem nýjan framkvæmdastjóra Kviku Securities Ltd.

Gunnar hefur leitt uppbyggingu breskrar starfsemi Kviku frá stofnun árið 2017. Hann mun sinna ákveðnum verkefnum áfram fyrir KSL og vera félaginu innan handar við framkvæmdastjóraskiptin.

Richard Beenstock, sem útskrifaðist frá University of Birmingham og hefur hlotið réttindi sem löggiltur endurskoðandi, hefur yfir 20 ára starfsreynslu af breskum fjármálamörkuðum við útlána- og fjárfestingastarfsemi. Árið 2013 stofnaði Richard, ásamt fleirum, Ortus Secured Finance, fasteignalánafélag sem síðar var keypt af KSL, og var forstjóri þess þar til í september 2023.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka:

„Ég vil nota tækifærið og þakka Gunnari Sigurðssyni fyrir frábært samstarf í gegnum árin. Gunnar gekk til liðs við Kviku árið 2015 og hefur verið framkvæmdastjóri KSL frá upphafi starfseminnar í byrjun árs 2017. Þá var hann eini starfsmaður félagsins en undir hans forystu hefur átt sér stað mikil uppbygging í Bretlandi, í útlánastarfsemi, eignastýringu og fyrirtækjaráðgjöf. Í KSL og dótturfélögum starfa nú yfir 30 manns.

Það er ánægjulegt að geta tilkynnt að Richard Beenstock taki við keflinu sem framkvæmdastjóri KSL og leiði áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Richard er Kviku að góðu kunnur. Hann er frábær stjórnandi og býr yfir umfangsmikilli reynslu og þekkingu til að vinna vel úr tækifærum okkar í Bretlandi.“

Til baka