07. apríl 2022

Breytingar á framkvæmdastjórn Kviku banka hf.

Magnús Ingi Einarsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra bankasviðs Kviku banka hf. undanfarin ár, hefur sagt starfi sínu lausu og hættir störfum á næstu dögum.

Ólöf Jónsdóttir tekur við af Magnúsi Inga

Í framhaldi á þessum breytingum hefur Ólöf Jónsdóttir, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og þróunarsviðs Kviku frá apríl 2021, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri bankasviðs.

Ólöf hóf störf hjá Kviku árið 2017, fyrst sem forstöðumaður stefnumótunar og rekstrarstjórnunar og síðar sem forstöðumaður fjártækni. Í apríl 2020 tók hún við starfi framkvæmdastjóra Lykils fjármögnunar hf. og gegndi hún því starfi fram að samruna Kviku, Lykils og TM í apríl 2021, þegar hún tók sæti í framkvæmdastjórn Kviku.

Anna Rut Ágústsdóttir ráðin framkvæmdastjóri rekstrar- og þróunarsviðs bankans

Anna Rut Ágústsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstöðumanns fjármála- og rekstrarsviðs hjá Kviku eignastýringu hf., dótturfélagi Kviku, frá ársbyrjun 2020, mun taka við starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og þróunarsviðs af Ólöfu. Anna Rut hefur starfað hjá samstæðu Kviku og forverum frá árinu 2007, m.a. sem forstöðumaður útlánaáhættu hjá Straumi fjárfestingarbanka hf. á árunum 2012 til 2015.

 

Samhliða þessum breytingum mun Thomas Skov Jensen sem gegnt hefur starfi forstöðumanns áhættustýringar taka sæti í framkvæmdastjórn Kviku. Thomas hefur verið forstöðumaður áhættustýringar Kviku og áður MP banka hf. frá árinu 2007.

 

Marinó Örn Tryggvason, forstjóri:

"Magnús Ingi hefur starfað hjá bankanum og forverum hans frá árinu 2006, setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2015 og gegnt lykilhlutverki í að byggja upp það öfluga fyrirtæki sem Kvika er í dag.

Mig langar að þakka Magnúsi fyrir góð störf  og óska honum velfarnaðar í nýjum verkefnum."

"Innan Kviku samstæðunnar er mikið af öflugu starfsfólki sem býr yfir mikilli reynslu og því er ánægjulegt að bjóða Ólöfu, Önnu Rut og Thomas velkomin í ný störf og verkefni innan samstæðunnar. Þeirra reynsla og þekking mun án efa koma sér vel í þeim verkefnum sem fram undan eru hjá samstæðunni."

Til baka