Aðalfundur Kviku banka 30. mars
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Ársreikningur félagsins fyrir árið 2022 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,4 á hlut sem jafngildir kr. 1.912.410.328, að teknu tilliti til eigin hluta. - Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
- Tillaga um lækkun hlutafjár með ógildingu eigin hluta og samsvarandi breytingu á samþykktum félagsins.
- Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
- Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda félagsins.
- Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar félagsins.
- Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig eigi síðar en kl. 16.00 þann 30. mars, eða degi fyrir fundardag.