Auður býður bestu kjörin á föstum húsnæðislánavöxtum til þriggja ára
Auður, fjármálaþjónusta Kviku banka, býður nú í fyrsta sinn upp á óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til þriggja ára. Vextirnir eru frá 8,60% og samkvæmt vaxtasamanburði Aurbjargar býður Auður því bestu kjörin á óverðtryggðum húsnæðislánum með föstum vöxtum til þriggja ára.
Halldór Snæland, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku
„Fólk tók vel í að fá fleiri valkosti og betri kjör þegar Auður fór inn á innlánamarkaðinn og við höfum séð það sama með húsnæðislánin. Þegar fólk er að kaupa heimili eða endurfjármagna skiptir máli að vita hvaða vexti það greiðir næstu þrjú árin. Við viljum að fólk eigi kost á meiri vissu í mánaðarlegri greiðslubyrði sinni og það er ánægjulegt að Auður bjóði nú upp á þennan valkost á betri kjörum en hafa verið í boði.“
Auður sækir fram á húsnæðislánamarkaði
Auður hefur fest sig í sessi á innlánamarkaði með hagstæðum sparnaðarvöxtum og einfaldri þjónustu á netinu. Húsnæðislán Auðar með breytilegum vöxtum hafa fengið góðar viðtökur frá því þau voru kynnt sumarið 2025. Með föstum vöxtum fjölgar valkostum hjá Auði og bankinn heldur áfram að sækja fram á húsnæðislánamarkaði með sérstaka áherslu á hagstæð óverðtryggð lán.
Hægt er að bera saman lánaleiðir, reikna út greiðslubyrði og sækja um húsnæðislán á audur.is/husnaedislan.