07. nóvember 2023

Aur opnar bankaþjónustu og býður frítt debetkort sem borgar til baka

Aur, sem er í eigu Kviku, hefur opnað nýja bankaþjónustu og býður upp á bestu kjörin á debetkortum. Debetkortin eru án allra gjalda og þau fyrstu með endurgreiðslu. Neytendur njóta ávinningsins af lítilli yfirbyggingu og snjöllum tæknilausnum, segir forstjóri Kviku.

Aur mun bjóða upp á hagstæðustu debetkortareikninga sem völ er á. Reikningarnir eru með 4% vöxtum sem greiddir eru mánaðarlega, engu stofngjaldi, árgjaldi né færslugjöldum. Þá fá korthafar Aurs 2,6% endurgreiðslu af erlendum greiðslum og allt að 10% endurgreiðslu þegar verslað er hjá Vinum Aurs. Endurgreiðslurnar eru í formi Klinks, vildarkróna Aurs, sem viðskiptavinir geta notað til að borga með á markaðstorgi Aurs, breytt í sparnað hjá Auði eða sent áfram á vini.

„Síðustu misseri hefur verið unnið hörðum höndum að því að þróa nýja bankaþjónustu hjá Aur og nú kynnum við bestu mögulegu kjör á debetkortareikningum, auk þess sem viðskiptavinir fá borgað til baka fyrir að nota kortið,“ segir Sverrir Hreiðarsson, forstöðumaður fjártækni hjá Kviku. „Með tilkomu Auðar á sínum tíma breytti Kvika markaðnum fyrir sparnaðarreikninga og bauð allt að tvöfalt betri vexti en þekktust. Neytendur tóku þessari nýju þjónustu vel enda eru viðskiptavinir Auðar rúmlega 45 þúsund talsins. Nú er komið að því að breyta almennri bankaþjónustu, debetkortamarkaðnum – neytendum til hagsbóta. Erlend debetkortavelta er 114 milljarðar króna á ári og endurgreiðsluhlutfall Aurs jafngilti 3 milljörðum af þeirri upphæð.“

Aur var stofnað árið 2015 sem einföld leið til að millifæra peninga með því einu að nota símanúmer. Notendur Aurs eru nú um 125 þúsund talsins.

„Markmið Kviku er að auka samkeppni í fjármálaþjónustu og einfalda fjármál viðskiptavina. Aur hefur verið leiðandi í fjártækni á Íslandi og með nýju bankaþjónustunni er enn eitt skrefið tekið á þeirri vegferð þar sem boðið verður upp á þjónustu sem hefur ekki verið áður í boði á íslenskum markaði. Lítil yfirbygging og vel útfærðar tæknilausnir gera okkur kleift að bjóða upp á betri kjör og snjallari nálgun en þekkist,“ segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.

Ásamt hagstæðasta debetkortinu býður Aur meðal annars upp á kreditkort með 0,5% endurgreiðslu af allri verslun, vildarkerfið Klink, Klíkuna sem heldur utan um kostnað og uppgjör sameiginlegra útgjalda vina og hópa, 5x greiðsludreifingu þar sem hægt er að dreifa kortafærslum, vörukaupum eða ógreiddum reikningum í fimm greiðslur á góðum kjörum, og þrenns konar tryggingar svo fátt eitt sé nefnt. Nánari upplýsingar um Aur og nýju bankaþjónustuna má finna á aur.is.

Til baka